Bristol City tók á móti Ipswich í ensku Championship deildinni í dag en leiknum lauk með 1-0 sigri heimamanna.
Það var Milan Djuric skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu og lokatölur því 1-0 fyrir Bristol City.
Hörður Björgvin Magnússon var í byrjunarliði Bristol í dag og spilaði í hjarta varnarinnar en honum var skipt af velli á 71. mínútu.
Bristol tilkynnti það svo eftir leik að hann hefði meiðst á hné í dag en alvarleiki meiðslanna hefur ekki ennþá verið gefinn út.
Hann mun nú gangast undir frekari rannsóknir og verður hann að öllum líkindum frá í næstu leikjum liðsins.