Aaron Ramsey miðjumaður Arsenal er á leið í litla aðgerð sem mun halda honum frá keppni í nokkrar vikur.
Ramsey var ekki valinn í landsliðshóp Wales sem heldur til Kína í næstu viku.
Hann gæti þó spilað með Arsenal í kvöld gegn AC Milan í Evrópudeilinni en aðgerðin er ekki stór.
,,Við höfum rætt við Aaron og Arsenal síðustu vikur, hann fer í litla aðgerð. Þetta var góður tímpaunktur,“ sagði Ryan Giggs landsliðsþjálfari Wales.
,,Þetta er áfall því þú vilt hafa bestu leikmennina með og mig langar að vinna þennan bikar í Kína.“