Jose Mourinho stjóri Manchester United reyndi að verja sjálfan sig eftir tap gegn Sevilla í gær.
United er úr leik í Meistaradeildinni eftir 2-1 tap gegn Sevilla á heimavelli í gær.
Frammistaða United hefur verið harkalega gagnrýnd í mörgum leikjum í ár.
,,Við þurfum að breyta öllu,“ sagði Mourinho eftir að Untied féll úr leik.
,,Það eyða allir peningum, það eru ekki bara við. Við þurfum að styrkja liðið, það er eðlileg þróun.“
,,Við erum ekki að breyta hlutum bara til að breyta þeim.“