KSÍ og Errea munu frumsýna nýjustu landsliðstreyju Íslands þann 15. mars næstkomandi.
Mikil eftirvænting ríkir fyrir treyjunni enda mun íslenska landsliðið klæðast henni á HM í Rússlandi í sumar.
Ísland leikur í D-riðli keppninnar ásamt Argentínu, Nígeríu og Króatíu og því ljóst að verkefnið framundan er afar strembið.
Strákarnir hafa hins vegar sýnt það og sannað í gegnum tíðina að þeir geta náð í úrslit gegn hvaða liðið sem er en reikna má með fjölda Íslendinga í Rússlandi í sumar.
Auglýsingin hefur vakið mikla athygli og er íslenskt landslag í aðalhlutverki af augljósum ástæðum.
Auglýsinguna má sjá hér fyrir neðan.