Manchester United tók á móti Liverpool í stórleik ensku úrvalsdeildarinnar í gær en leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna.
Það var Marcus Rashford sem skoraði bæði mörk United í fyrri hálfleik en sjálfsmark frá Eric Bailly reyndist eina mark Liverpool í leiknum.
Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool og núverandi sparkspekingur hjá Sky Sports var á vellinum á laugardag og virðist hann hafa verið ósáttur með úrslitin.
Þegar að hann var að keyra heim til sín lenti hann við hliðiná stuðningsmönnum United á hraðbrautinni
Þeir byrjuðu að grínast í honum með úrslitin með þeim afleiðingum að Carragher ákvað að hrækja á þau.
Hrákan endaði á enni barnsins í farþegasætinu. ,,Algjörlega heimskulegt og ég hef beðið alla fjölskylduna afsökunar,“ sagði Carragher.
,,Ég var böggaður 3/4 sinnum á hraðbrautinni og missti stjórn á mér. Ég get samt ekki afsakað þetta.“