Leigubílasögurnar eru daglegur liður hér á 433.is. Í þessum lið er farið yfir helsta slúðrið og sögusagnirnar úr fótboltanum, aðallega úr bresku pressunni.
Félagaskiptaglugginn í stærstu deildum Evrópu er nú lokaður.
Það er hins vegar alltaf nóg af slúðri en það er BBC sem tók saman.
—————
Liverpool telur sig geta landað Jack Butland, markmanni Stoke fyrir 40 milljónir punda. (Mirror)
Massimiliano Allegri, stjóri Juventus er tilbúinn að taka við Arsenal í sumar, ef Wenger hættir. (Sun)
Manchester United vill fá Alex Sandro, vinstri bakvörð Juventus en Matteo Darmian gæti farið í skiptum. (People)
PSG hefur engan áhuga á því að selja Neymar, hvorki til Barcelona né Real Madrid. (Sky Sports)
AC Milan ætlar sér að reyna að fá Jack Wilshere, miðjumann Arsenal en hann gæti yfirgefið félagið í sumar. (Express)
Pep Guardiola segir að hann sé með tíu ára plan þegar kemur að þjálfaraferli sínum en hann er nálægt því að skrifa undir nýjan samning við City. (Mirror)
Real Madrid ætlar sér að fá Karlo Letica, markmann Hadjuk Split ef þeir ná ekki að landa David de Gea. (Marca)
Christian Benteke er á förum frá Crystal Palace í sumar og gæti hann endað í Kína. (Sun)
Javi Garcia, stjóri Watford er ekki sannfærður um að Abdoulaye Doucoure muni spila með Watford á næstu leiktíð en hann er afar eftirsóttur af stóru liðunum á Englandi. (Watford Observer)
Jesse Lingard er að skrifa undir nýjan samning á Old Trafford. (Star)