Arsene Wenger, stjóri Arsenal segir að það sé lítið sjálfstraust í liðinu þessa dagana.
Arsenal hefur gengið skelfilega í undanförnum leikjum og virðist vera búið að missa af Meistaradeildarsæti í ár.
„Þegar að þú tapar leikjum þá minnkar sjálfstraustið,“ sagði Wenger.
„Við virðum vera búnir að gleyma því hversu góðir við erum,“ sagði hann að lokum.