Sam Allardyce stjóri Everton segist vera hjá félaginu til lengri tíma og hann ætlar ekki að hætta í sumar.
Everton gæti hins vegar rekið Allardyce því eigendur Everton eru ekki alls sáttir.
Gengi Everton er langt undir væntingum en Allardyce hefur þó unnið ágætis starf eftir að hann tók við af Ronald Koeman í vetur.
,,Það er svekkjandi fyrir alla að við höfum misst flugið,“ sagði Allardyce.
,,Ég var hættur en kom til baka því hér er verkefni til lengri tíma, ég er spenntur að vera hluti af því.“