Ederson, markmaður Manchester City segir að liðið sé ekki að hugsa um þrennuna í ár.
City hefur nú þegar tryggt sér Deildarbikarinn og er á góðri leið með að vinna ensku úrvalsdeildina.
„Við erum rólegir og tökum einn leik fyrir í einu,“ sagði Ederson.
„Við erum ekki að hugsa um þrennuna, það væri heimskulegt á þessum tímapunkti,“ sagði hann að lokum.