Ilkay Gundogan, miðjumaður Manchester City segir að hann haf verið nálægt því að ganga til liðs við Barcelona árið 2016.
Gundogan kom til City sumarð 2016 fyrir 25 milljónir punda en enska liðið var ekki eina liðið sem hafði áhuga á honum.
Miðjumaðurinn var algjör lykilmaður í liði Dortmund sem vann m.a þýsku úrvalsdeildina undir stjórn Jurgen Klopp.
„Ég var mjög nálægt því að ganga til liðs við Barcelona á sínum tíma en á endanum gekk það ekki í gegn,“ sagði miðjumaðurinn.
„Í dag er ég á þeim stað sem ég vil vera á, ég er mjög ánægður hjá City,“ sagði hann að lokum.