433.is lagði könnun fyrir lesendur sína í gær þar sem spurt var út í besta leikmann ensku úrvalsdeildarinnar á þessu tímabili.
Fjórir voru í boði en um var að ræða Kevin de Bruyne, Harry Kane, David de Gea og Mohamed Salah.
Ljóst var frá byrjun að Salah myndi hafa mikla yfirburði en hann fékk 62 prósent atkvæða.
Kevin de Bruyne fékk 17 prósent atkvæða en David De Gea fékk 13 prósent atkvæða.
Harry Kane fékk svo átta prósent atkvæða.
Hver er leikmaður ársins á Englandi hingað til?
— 433.is (@433_is) March 4, 2018