N’Golo Kante miðjumaður Chelsea var ekki með liðinu gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í gær. Þar vann City 1-0 sigur.
Ástæðan er sú að það leið yfir Kante á æfingu Chelsea fyrir helgi.
Leikmönum Chelsea var brugðið á föstudag þegar Kante hneig niður á æfingu.
Hann var sendur í rannsóknir en ekkert kom úr þeim, talið er að kuldinn á æfingunni hafi haft áhrif.
Kante ferðaðist með Chelsea í leikinn við City en leið ekki vel á morgni leikdags og spilaði þess vegna ekki.