Arsenal er tilbúið að selja Aaron Ramsey miðjumann félagsins í sumar ef hann fer ekki að skrifa undir nýjan samning.
Ramsey verður samningslaus sumarið 2019 og Arsenal vill ekki eiga á hættu á að missa hann frítt.
Líkur eru að verða á að Jack Wilshere fari frítt frá Arsenal í sumar þegar samningur hans er á enda.
Ramsey hefur ekki samþykkt nýjan samning og gæti því farið frá Arsenal í sumar.
Arsenal hefur átt í erfiðleikum með að fá leikmenn til að skrifa undir nýja samninga síðustu ár.