Manchester City pakkaði Arsenal saman í annað sinn á nokkrum dögum þegar liðin mættust í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Leikið var á Emirates vellinum en margir stuðningsmenn Arsenal ákváðu að sleppa því að mæta á leikinn. Emirates völlurinn var því hálf tómur þegar City hlóð í þrjú mörk á 18 mínútum í fyrri hálfleik.
Bernardo Silva skoraði það fyrsta á 15 mínútu og síðan fylgdu mörk frá David Silva og Leroy Sane. Pierre-Emerick Aubameyang fékk tækifæri til að laga stöðuna og búa til leik í síðari hálfleik en klikkaði á vítaspyrnu.
Arsenal hefur tapað sjö leikjum árið 2018 en ekkert lið í ensku úrvalsdeildinni hefur tapað fleiri leikjum.
Liðið er í frjálsu falli undir stjórn Arsene Wenger sem gæti brátt látið af störfum.
7 – Arsenal have lost more matches in all competitions in 2018 than any other Premier League team (7). Woeful. pic.twitter.com/BtTDE55G9G
— OptaJoe (@OptaJoe) March 1, 2018