Fernando Llorente framherji Tottenham reimaði á sig markaskóna gegn Rochdale í enska bikarnum í dag.
Enn á ný var VAR, myndbandstækni Englendinga það sem helst var rætt um framan af leik.
VAR tæknin er afar umdeild og hversu mikil er eftir dómi pirrar flest knattspyrnuáhugafólk.
Llorente var ekki að pirra sig á þessu og skoraði þrennu í 6-1 sigri Tottenham.
Heung-Min Son skoraði tvö mörk í leiknum en klikkaði líka á vítaspyrnu sem VAR tæknin dæmdi. Þá skoraði Kyle Walker-Pieters síðasta mark leiksins.
TOttenham er þar með komið í átta liða úrslit þar sem liðið mætir Swansea.