Það er fróðlegur leikur í Meistaradeildinni í kvöld þegar Chelsea tekur á móti Barcelona.
Um er að ræða fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum en leikið verður á Stamford Bridge.
Það eru fáir sem þekkja þessi félög betur en Eiður Smári Guðjohnsen sem lék fyrir bæði félög.
Eiður var í London í gær og ekki ólíklegt að hann verði á Stamford Bridge í kvöld.
The Sun gerði áhugavert myndband um feril Eiðs Smára sem má sjá hér að neðan.