Lucas Moura er búinn í læknisskoðun hjá Tottenham en það er Sky Sports sem greinir frá þessu.
Hann ner að ganga til liðs við enska félagið og þarf Tottenham að borga PSG 25 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Moura hefur ekki átt fast sæti í liði PSG á þessari leiktíð og fær lítið að spila eftir að félagið fékk þá Neymar og Kylian Mbappe.
Sóknarmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við enska félagið að undanförnu og nú virðast félagskiptin loksins vera að ganga í gegn.