FC Barcelona hefur staðfest að Gerard Deulofeu sé farinn aftur til Englands.
Deulofeu sem ólst upp hjá Barcelona var í nokkur ár hjá Everton áður en hann snéri heim.
Deulofeu hefur ekki fundið taktinn í Katalóníu og hefur nú verið lánaður til Watford.
Watford greiðir öll laun Deulofeu og gæti þurft að borga 1 milljón evra eftir því hvernig Deulofeu stendur sig.
Deulofeu er öflugur kantmaður sem gæti styrkt Watford á lokasprettinum.