Wigan tók á móti West Ham í enska FA-bikarnum í dag en leiknum lauk með 2-0 sigri heimamanna.
Það var Will Grigg sem skoraði bæði mörk Wigan í dag en á 49. mínútu fékk Arthur Masuaku að líta beint rautt spjald.
Hann hrækti í átt að leikmanni Wigan og fékk að líta rauða spjaldið fyrir vikið og er nú á leiðinni í sex leikja bann.
Myndir af þessu má sjá hér fyrir neðan.