Newcastle United hefur tryggt sér Kenedy á láni frá chelsea út þessa leiktíð.
Þessi 21 árs leikmaður gæti spilað sinn fyrsta leik gegn Burnley í næstu viku.
Kenedy kom til Chelsea frá Fluminense í Brasilíu árið 2015, heimalandi hans.
,,Ég er svo ánægður með þetta tækifæri hjá Newcastle, liðið opnaði dyrnar fyrir mig og sýndi hvað er hægt að gera hérna,“ sagði Kenedy.
Kenedy er vinstri bakvörður og kantmaður en Newcastle vantaði liðsstyrk.