Henrikh Mkhitaryan virðist vera búinn að taka upp myndband til að bjóða Pierre-Emerick Aubameyang velkominn til Arsenal.
Mkhitaryan gekk í raðir Arsenal frá Manchester United í gær og nú reynir Arsenal að klára kaup á Aubameyang.
Þeir félagar þekkjast mjög vel og léku frábærlega saman hjá Borussia Dortmund.
Mkhitaryan virðist hins vegar hafa kjaftað af sér en í myndbandi sem Arsenal birti af slysni í gær sést hann segja. ,,Hæ, Pierre viltu koma hingað,“ sagði Mkhitaryan.
Myndband af þessu er hér að neðan.