Frank Lampard er í viðræðum við Oxford um að taka við sem knattspyrnustjóri félagsins.
Oxford leitar að stjóra eftir að Pep Clotet var rekinn úr starfi í gær.
Lampard hefur áhuga á að fara í þjálfun en ekki er vitað hvort hann vilji þetta starf.
Lampard átti magnaðan feril sem leikmaður og ætti að hafa mikla reynslu fyrir leikmenn að læra af.
Lampard hefur verið að hjálpa til í unglingaliðum Chelsea.