Jurgen Locadia er gengin til liðs við Brighton en þetta var tilkynnt núna rétt í þessu.
Hann er 24 ára gamall, hollenskur framherji en félagaskiptin hafa legið lengi í loftinu.
Kaupverðið er rúmlega 14 milljónir punda og er hann dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Hann hefur spilað 19 leiki með PSV á þessari leiktíð þar sem hann hefur skorað 9 mörk og lagt upp önnur 2.
Brighton er í sextánda sæti deildarinnar með 23 stig, 3 stigum frá fallsæti.