Kostas Stafylidis er gengin til liðs við Stoke City en þetta var tilkynnt í dag.
Hann skrifar undir lánssamning sem gildir út leiktíðina en hann kemur til félagsins frá Augsburg í Þýskalandi.
Hann er 24 ára gamall og spilar sem vinstri bakvörður en hann á nokkra landsleiki að baki með Grikklandi.
Hann þekkir ágætlega til á Englandi eftir að hafa spilað með Fulham en Stoke er í miklu basli í átjánda sæti deildarinnar með 21 stig, einu stig frá öruggu sæti.