Henrikh Mkhitaryan miðjumaður Manchester United ræðir nú við Arsenal um að koma til félagsins.
Mino Raiola umboðsmaður Mkhitaryan ræðir við Arsenal þessa stundina.
Hann á að fara í skiptum fyrir Alexis Sanchez sem er sagður hafa samþykkt samning við United.
London Evening Standard segir að Mkhitaryan verði launahæsti leikmaður Arsenal.
Mkhitaryan er með 140 þúsund pund á viku hjá United en sagt er að Arsenal sé til í að borga honum 175 þúsund pund á viku.