Arsenal er að hefja viðræður við Jack Wilsher um nýjan samning en miðjumaðurinn er að finna sitt besta form.
Wilshere hefur glímt við ótrúlegt magn af meiðslum síðustu ár en nú er bjartsýnni á Emirates vellinum.
Wilshere verður samningslaus í sumar og vill Arsenal framlengja samning hans.
Wilshere þénar 100 þúsund pund á viku en samkvæmt fréttum dagsins vill Arsenal lækka föst laun hans.
Arsenal vill borga Wilshere 80 þúsund pund á viku en betri bónusa fyrir spilaða leiki og árangur en hann hefur áður verið með.