Sky Sports News segir að ekkert samkomulag sé í höfn á milli Manchester United og Arsenal.
Félögin ræða sín á milli um að skipta á Alexis Sanchez og Henrikh Mkhitaryan.
Sanchez er sagður hafa náð samkomulagi við United en Sky hefur ekki tekist að fá það staðfest.
Sky segir að viðræður séu í gangi á milli félaganna en ekkert samkomulag sé í höfn.
Búist er við að málið fari að skýrast en Henrikh Mkhitaryan er sagður efins um það að fara til Arsenal.