Liverpool hefur lánað Marko Grujic til Cardiff út þessa leiktíð.
Grujic sem er frá Serbíu er miðjumaður og gæti komið til með að fylla skarð Arons Einars Gunnarssonar næstu vikur.
Aron Einar fór í aðgerð á ökkla á dögunum og reynir nú að ná fullum bata.
Grujic kom til Liverpool árið 2016 en þessi leikmaður frá Serbíu hefur ekki heillað.
Liverpool ákvað því að lána hann til að koma honum í spilform og sjá hvernig leikur hann þróast.
Marko Grujic has joined @CardiffCityFC on loan until the end of the season, subject to international clearance
➡️ https://t.co/x7VK9Vuj4Z pic.twitter.com/aUDlvoJleQ
— Liverpool FC (@LFC) January 17, 2018