Mauro Icardi, framherji Inter Milan er í dag sterklega orðaður við Real Madrid.
Real Madrid hefur ekki gengið vel á þessari leiktíð en liðið situr í fjórða sæti spænsku La Liga og er 16 stigum á eftir Barcelona.
Corriere dello Sport greinir frá því í dag að félagið íhugi nú að borga upp klásúlu í samningi Icardi sem hljóðar uppá 97,8 milljónir punda.
Icardi hefur verið magnaður fyrir Inter á þessari leiktíð og hefur skorað 18 mörk í 22 leikum fyrir félagið.
Hann hefur verið orðaður við brottför frá félaginu, undanfarin ár en alltaf haldið tryggð við Inter Milan.