Mino Raiola umboðsmaður Henrikh Mkhitaryan segir að Alexis Sanchez fari ekki til Manchester United nema að Mkhitaryan sé klár í að fara til Arsenal.
Mkhitaryan liggur nú undir feld samkvæmt Raiola og íhugar hvað hann eigi að gera.
,,Manchester United fær ekki Sanchez nema að Mkhi sé klár í að fara til Arsenal,“ sagði Raiola.
,,Mkhi hefur ekki ákveðið sig ennþá, Mkhi gerir það sem er best fyrir hann. Hann á tvö og hálft ár eftir af samningi sínum, hann tekur þessa ákvöðrun.“
Ljóst er að United setur pressu á Mkhitaryan að fara til Arsenal enda vill félagið krækja í Sanchez.