Ryan Giggs er formlega orðinn nýr þjálfari hjá karlalandsliði Wales.
Giggs hefur verið í viðræðum við Wales undanfarið og þær viðræður hafa borið árangur.
Giggs lét af störfum sem aðstoðarþjálfari Manchester United eftir að Louis van Gaal var rekinn úr starfi sumarið 2016.
Giggs átti frábæran feril sem leikmaður hjá United og einnig með Wales.
Giggs gerir fjögurra ára samning við Wales en hann tekur við af Chris Coleman.
#CroesoGiggsy#TogetherStronger pic.twitter.com/V5P8Q12Arb
— Wales (@Cymru) January 15, 2018