Það bendir margt til þess að Alexis Sanchez sóknarmaður Arsenal sé að ganga í raðir Manchester United.
Eins og staðan er núna er United tilbúið að borga bæði Arsenal og Sanchez meira en Manchester City.
Framtíð Sanchez ætti að skýrast á næstu tveimur dögum en samningur hans er á enda í sumar.
Arsenal íhugar því að selja hann núna til að missa hann ekki frítt næsta sumar.
Hér að neðan má sjá hvernig byrjunarlið United gæti orðið með komu Sanchez.