Sadio Berahino framherji Stoke hefur verið eitthvað utan við sig í morgun.
Berahino hélt að það væri mánudagur og mætti klár í leik gegn Manchester United.
Berahino klæddi sig í gallann sem Stoke notar þegar mætt er í leiki.
Leikmenn Stoke voru fljótir að benda Berahino á það að nú væri sunnudagur.
Það var því æfing en ekki leikur um kvöldið. Mikið grín var gert af Berahino en liðin mætast klukkan 20:00 á morgun.
Myndir af þessu eru hér að neðan.