Albert Guðmundsson er gjörsamlega allt í öllu þegar Ísland er að vinna 4-1 sigur á Indónesíu.
Albert kom inn sem varamaður á 27 mínútu leiksins og jafnaði leikinn fyrir Ísland undir lok fyrri hálfleiks.
Hann tók svo hornspyrnuna sem annað mark Íslands kom upp úr en það skoraði Arnór Smárason.
Albert skoraði þriðja mark Íslands úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Hann fullkomnaði svo þrennu sína á 71 mínútu með einstaklings framtaki af bestu gerð.
Leikurinn er enn í gangi en mörk Alberts má sjá hér að neðan.
Albert Guðmundsson jafnar fyrir Ísland á annarri mínútu viðbótartíma fyrri hálfleiks. 1-1 í hálfleik. Fyrsta A-landsliðsmark Alberts. #INDISL pic.twitter.com/KQ5ejt4A4Y
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 14, 2018
Albert bætti öðru marki sínu við úr vítaspyrnu sem hann fékk sjálfur á 64. mínútu. #INDISL pic.twitter.com/WREuyTxYJm
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 14, 2018
Og Albert kominn með þrennuna gegn Indónesíu. 4-1 fyrir Ísland. #INDISL pic.twitter.com/wLbwxGlMFi
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) January 14, 2018