Antonio Conte stjóri Chelsea segist ekki missa svefn þó hann eigi í stríði við Jose Mourinho.
Þeir félagar hafa skotið fast á hvorn annan í fjölmiðlum undanfarið.
Mourinho sagði í gær að hann ætlaði ekki að eyða meiri tíma í orðastríð við Conte.
,,Ég veit ekki hvað hann var að segja,“ sagði Conte eftir markalaust jafntefli við Leicester í dag.
,,Ég hef ekki áhyggjur, ekki neinar áhyggjur. Ég sef mjög vel.“