Philippe Coutinho hefur formlega gengið í raðir Barcelona en hann stóðst læknisskoðun í gær.
Coutinho skrifaði í gær undir fimm og hálfs árs samning við Barcelona. Barcelona borgar 142 milljónir punda fyrir þenann öfluga leikmann.
Coutinho var í fimm ár hjá Liverpool og þróaðist í einn af betri leikmönnum deildarinnar.
Coutinho hittir gamlan liðsfélaga, Luis Suarez hjá Barcelona.
Suarez tók vel á móti Coutinho á æfingasvæði Barcelona í dag og kynnti hann fyrir nýjum liðsfélögum.
Þrjár vikur eru í fyrsta leik Coutinho en hann er að jafna sig af meiðslum í læri.
Mynd af þessu er hér að neðan.