Kevin Strootman, miðjumaður Roma er í dag orðaður við Liverpool en það er TalkSport sem greinir frá þessu.
Samkvæmt miðlinum hefur Jurgen Klopp, stjóri Liverpool haft samband við forráðamenn félagsins varðandi leikmanninn.
Roma er tilbúið að selja Strootman, fyrir rétta upphæð en hann hefur verið afar óheppinn með meiðsli, undanfarin ár.
Liverpool seldi Philippe Coutinho á dögunum til Barcelona fyrir 142 milljónir punda og þá gæti Emre Can einnig verið á förum.
Klopp telur að Strootman gæti verið fullkominn til að leysa Can af hólmi sem hefur verið orðaður við Juventus að undanförnu.