Lucas Moura, sóknarmaður PSG færist nær því að ganga til liðs við Manchester United en það eru brasilískir fjölmiðlar sem greina frá þessu í kvöld.
Leikmaðurinn hefur verið sterklega orðaður við United að undanförnu en hann fær lítið að spila með PSG.
Í fyrstu var talið að United vildi fá leikmanninn á láni en PSG er aðeins tilbúið að selja hann.
Globo Esporte greinir frá því í kvöld að félögin hafi komust að samkomulagi um verðmiðann sem hljóðar upp á 25 milljónir evra.
PSG er í vandræðum vegna FFP reglna Fifa og þarf því að selja leikmenn frá félaginu til þess að virða þær.