Philippe Coutinho hefur formlega gengið í raðir Barcelona en hann stóðst læknisskoðun í gær.
Coutinho skrifaði í gær undir fimm og hálfs árs samning við Barcelona. Barcelona borgar 142 milljónir punda fyrir þenann öfluga leikmann.
Coutinho var í fimm ár hjá Liverpool og þróaðist í einn af betri leikmönnum deildarinnar.
,,Ég er enn að melta þetta,“ sagði Gerrard.
,,Ég er ekki hissa, ég veit að Liverpool gerði allt til þess að halda honum og þeir lögðu mikið á sig síðasta sumar til að gera.“
,,Þegar strákur á draum, frá Suður Ameríkur, um að spila fyrir Barcelona þá er erfitt að stoppa það. Hann telur að þetta sé kannski eina tækifærið sitt.“
,,Það er ekki nokkur vafi um að Liverpool mun sakna hans, hann er frábær fótboltamaður. Frábær persóna, ég virði ákvörðun hans og óska honum alls hins besta.“