Ryan Giggs fyrrum leikmaður og aðstoðarþjálfari Manchester United kemur til greina sem næsti stjóri Stoke.
Mark Hughes var rekinn úr starfi um helgina eftir tap gegn Coventry í enska bikarnum.
Giggs vill koma sér á fullt í boltann og er hann einn af þeim sem kemur til greina.
Wales er einnig að leita sér að þjálfara og hefur nafn Giggs verið nefnt til sögunnar þar.
Giggs átti magnaðan feril sem leikmaður og varð síðan aðstoðarþjálfari Louis van Gaal en hætti störfum þegar Jose Mourinho tók við United.