Phiippe Coutinho borgaði sjálfur hluta af kauvpverði Barcelona til Liverpool.
The Times og fleiri ensk blöð fjalla um málið en líklegt er að Coutinho hafi gefið eftir greiðslur sem fór upp í kaupverðið.
Oftar en ekki fá leikmenn hluta af kaupverðinu og Coutinho hefur gefið þann hluta eftir.
Um er að eræða 11,5 milljónir punda eftir því sem fram kemur í enskum fjölmiðlum í dag.
Coutinho mun gera fimm og hálfs árs samning við Barcelona í dag en hann kostar félagið 142 milljónir punda.