Philippe Coutinho, sóknarmaður Liverpool er á leiðinni til Barcelona en enskir fjölmiðlar fullyrða þetta í dag.
Kaupverðið er talið vera í kringum 145 milljónir punda sem gerir hann að þriðja dýrasta leikmanni heims á eftir þeim Neymar og Kylian Mbappe.
Sky Sports greinir frá því í dag að hann muni gangast undir læknisskoðun hjá spænska liðinu á mánudaginn og þá mun hann ferðast til Barcelona í kvöld.
Félagaskiptin hafa legið lengi í loftinu og nú þykir ljóst að hann mun ekki klára tímabilið með Liverpool.
Coutinho kom til Liverpool árið 2013 og hefur verið algjör lykilmaður í liðinu síðan.