Liverpool tók á móti Everton í enska FA-bikarnum í gær en leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna.
James Milner kom Liverpool yfir á 35. mínútu með marki úr vítaspyrnu og staðan því 1-0 í hálfleik.
Gylfi Þór Sigurðsson jafnaði metin fyrir Everton með frábæru skoti um miðjan síðari hálfleikinn áður en Virgil van Dijk tryggði sínum mönnum sigur með skallamarki á 84. mínútu og lokatölur því 2-1 fyrir Liverpool.
Wayne Rooney átti alvöru tæklingu á Joe Gomez í gærdag og Joel Matip, miðvörður Liverpool brást ókvæða við.
Hann bauð upp á svakalegt göngulag í átt að dómaranum en myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.
Matip's walk is the best thing you'll see today 😂 pic.twitter.com/XYAvFeoYiO
— EPL Bible (@EPLBible) January 5, 2018