Manhcehster United tók á móti Derby County í enska FA-bikarnum í gærdag en leiknum lauk með 2-0 sigri heimamanna.
Það voru þeir Jesse Lingard og Romelu Lukaku sem skoruðu mörk heimamanna í gær en bæði mörkin komu undir lok leiksins.
Jose Mourinho, stjóri United tók Henrikh Mkhitaryan af velli í hálfleik og bað hann svo afsökunar á því fyrir framan allan leikmannahópinn eftir leik.
„Þetta var ósanngjarnt hjá mér,“ sagði stjórinn.
„Ég þurfti að fórna einum leikmanni.“
„Ég bað hann afsökunar fyrir framan leikmannahópinn,“ sagði hann að lokum.