Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace vonast til þess að halda Ruben Loftus-Cheek hjá félaginu.
Leikmaðurinn er í láni hjá Palace frá Chelsea sem keypti Ross Barkley í gær.
„Hann er leikmaður sem við viljum semja við til frambúðar,“ sagði stjórinn.
„Kaup Chelsea á Barkley gætu auðveldað okkur að fá hann yfir,“ sagði hann að lokum.