Ross Barkley er gengin til liðs við Chelsea en þetta var tilkynnt núna rétt í þessu.
Hann kemur til félagsins frá Everton og er kaupverðið talið vera í kringum 15 milljónir punda.
Barkley skrifar undir fimm og hálfs árs samning við Chelsea sem gildir til ársins 2023.
Litlu munaði að leikmaðurinn gengi til liðs við Chelsea í sumar en hann hætti sjálfur við vegna meiðsla.
Barkley hefur ekkert spilað með Everton á leiktíðinni vegna meiðsla en er nú byrjaður að æfa á nýjan leik og vonast til þess að komast á skrið á nýju ári.