Liverpool tók á mót Everton í enska FA-bikarnum í kvöld en leiknum lauk með 2-1 sigri heimamanna.
Það var James Milner sem kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik með marki úr vítaspyrnu.
Gylfi Þór Sigurðsson jafnaði hins vegar metin fyrir gestina með marki á 66. mínútu með frábæru skoti, rétt fyrir utan teig áður en Virgil van Dijk kom Liverpool í 2-1 á 84. mínútu með laglegu skallamarki.
Þetta var hans fyrsta mark fyrir félagið en hann kom frá Southampton í janúarglugganum fyrir 75 milljónir punda.