Ross Barkley er að ganga til liðs við Chelsea en frá þessu greina enskir fjölmiðlar í dag.
Kaupverðið er í kringum 15 milljónir punda en hann verður samningslaus, næsta sumar.
Everton vill selja hann núna, frekar en að missa hann frítt í sumar en hann hefur ekkert spilað með liðinu á þessari leiktíð.
Hann hefur staðist læknisskoðun hjá félaginu og ætti að skrifa undir samning við Chelsea á allra næstu dögum.