Nicolas Gaitan, leikmaður Atletico Madrid er afar eftirsóttur af liðum á Englandi en það er AS sem greinir frá.
Southampton, Everton, Crystal Palace og West Ham vilja öll fá leikmanninn til sín í janúar.
Hann hefur ekki átt fast sæti í liði Atletico Madrid á leiktíðinni og hefur aðeins komið við sögu í 10 leikjum.
Diego Simeone, stjóri Atletico Madrid er sagður tilbúinn að selja leikmanninn til þess að fá inn pening fyrir nýjum leikmönnum.
Verðmiðinn á leikmanninum er talinn vera í kringum 15 milljónir punda en það er upphæð sem ensku liðin ættu að ráða við.