Terence Kongolo er gengin til liðs við Huddersfield en þetta var tilkynnt núna rétt í þessu.
Hann skrifar undir lánssamning sem gildir út tímabilið en hann kemur til liðsins frá Monaco.
Þessi 23 ára gamli varnarmaður hefur komið við sögu í sex leikjum með Monaco á þessari leiktíð og staðið sig vel, þegar að hann hefur fengið tækifæri.
Huddersfield eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni en liðið situr í ellefta sæti deildarinnar með 24 stig.